Pál Erdős, eða Páll Erdös, eða Paul Erdős (26. mars 1913 – 20. september 1996) var ungverskur stærðfræðingur þekktur fyrir sérvisku sína og afkastamikinn feril enda liggja eftir hann um 1.500 fræðirit, aðeins Euler gaf út fleiri.
Páll talaði oft um Bókina þar sem Guð sjálfur safnar saman heimsins fallegustu sönnunum. Hann sagði oft að maður þyrfti ekki að trúa á guð ,en sem stærðfræðingur ,þá þyrftir þú að trúa á bókina.
Erdős tala einstaklings er einskonar samstarfsfjarlægð frá Pál Erdősi sem er mælt með sameiginlegri útgáfu stærðfræðigreina.
Ef einstaklingur hefur Erdős töluna 1 þýðir það að að hann hefur skrifað grein með Erdős; ef einstaklingur hefur Erdős tölunna 2 þá hefur hann skrifað grein með öðrum einstaklingi sem hefur skrifað grein með Erdős en ekki með Erdős sjálfum, og svo framvegis.
Hægt er að skilgreina Erdős tölunna endurkvæmt eins og líst er hér að neðan: